Baldur

För

by Skálmöld

on Baldur (2010)

Haldið upp á heiðina með mér
höfuðin fjúka í nótt
Guðirnir gefa okkur þrótt
Guðirnir veita okkur þrótt til að sigra
Vinir, ykkar vígamóði her
veitir mér liðveislu í nótt
Guðirnir gefa okkur þrótt
Guðirnar veita okkur þrótt til að sigra

Sver ég nú og sverðið legg
svírann á og sundur hegg
Jórinn þreyttur, ég er sár
Jökullinn yfir gnæfir hár

Blóðugur með brotna hönd
berst ég einn um ókunn lönd
Held ég enn í veika von
vígamaður Óðinsson

Göngum móti glötun og dauða
gjótur þar bíða og fen
Þar geta tryllingsleg trén
tekið þig niður og skellt þér á knén
Nýtum daginn og nóttina rauða
neitum að ganga í fen
Vörumst að taki' okkur trén
Gegn Tý, Þór og Óðni við föllum á knén

Ófærur og dauðans dýr
drepa þann sem burtu flýr
Höldum áfram, heiðnir menn
himnaranir þeir falla senn

Tölunni við týnum brátt
tættir sundur smátt og smátt
Held ég enn í veika von
vígamaður Óðinsson

Frændur mínir, fóstbræður
fylgið mér um ófærur
Deyi sá er deyja á
dugi sá er ætla má

Held ég upp á heiðina
held ég verstu leiðina
Held ég enn í veika von
vígamaður Óðinsson

Göngum móti glötun og dauða

Song Comments
On För by Skálmöld

Must have JavaScript enabled to comment.