Keflavík Kingston

Ljósvíkingur

by Hjálmar

on Keflavík Kingston (2010)

Þó ég gangi um dimman dal
sem vestrin hafa skapað
ég geng ekki einn.

að hver einn og einasti einstaklingur
fæðist hér sem ljósvíkingur
ég geng ekki einn

ég trúi því að allir hafi kraft
og geti áhrif haft
ég geng ekki einn

hörmungar og vantrú
drottinn hvar ert þú
ég geng ekki einn

vildi samt óska að ég væri meira vakandi
viðurkenni vel að stundum er ég sofandi
ég geng stundum aleinn

svo geng ég um þennan dimma dal
en aðrir ganga um svartari sal
ég geng ekki einn

ég bið náungann að vaka yfir mér
allir eru ljósvíkingar í hjartanu á sér
ég geng ekki einn

hörmungar og vantrú
drottinn hvar ert þú
ég geng ekki einn

vildi samt óska að ég
væri meira vakandi
viðurkenni vel að stundum er ég sofandi
ég geng stundum aleinn

ég geng ekki einn, ekki einn, ekki einn
ég geng ekki einn, ekki einn, ekki einn
ég geng ekki einn, ekki einn, ekki einn

Song Comments
On Ljósvíkingur by Hjálmar

Must have JavaScript enabled to comment.